Litli dúllinn minn

August 21st, 2008

Þessi mynd er alveg hreint frábær, hlakka mikið til að sjá hann og Hrundski mína annað kvöld. Verð á Íslandi til 31. ágúst.

Stuuuuuð hjá Hildi by Fjölskyldan Laufskógum 34.

Blogged with the Flock Browser

Ísland, fagra ísland

July 2nd, 2008

Er á leiðinni heim á föstudagskvöldið, í nógu að snúast, afgreiða gáminn úr tollinum, versla jeppa, mála, flytja inn, vinna, slappa af…

Brand New Spanking Nokia N95 (Orange)

June 14th, 2007

n95.jpgAbout a month ago I needed to renew my contract (with Orange). I’ve been the proud owner of a Qtek 8310 (Windows Smartphone) for over a year and I’ve been truly impressed with it. Had it not been for the renewal (where Orange insisted on giving my my brand spanking new Nokia N95) I would never have considered switching phones.

The phone comes locked to Orange and it has an old firmware (because Orange has disabled VoIP in their firmware and done some other nasty restrictions). First I called Orange and asked them to unlock the phone (£20, well worth it). After receiving the unlock code and applying it I found information through here that helped me reflash my phone with the latest firmware.

It’s been about a week since I reflashed it and I can now say I’m truly happy with the phone’s performance. Sure it drains the battery like there’s no tomorrow, see information here about ways to optimize the phone, but when you’ve got GPS, VoIP, 5MP camera, Music, Video, Radio etc. in one tiny little gadget you can live with charging it every day :)

Ný vinna og heilsubæli

May 29th, 2007

Þá er síðasta vinnuvikan hjá Merrill Lynch runnin upp og er ég töluvert spenntur fyrir að mæta í nýju vinnuna hjá GLG á mánudaginn :)

Í öðrum fréttum er það helst að ég er að fara í svefnrannsókn í kvöld, á að mæta kl. 20 í Princess Grace spítalann og láta tengja allskonar víra og drasl í mig, svo verða eflaust einhverjar sætar hjúkkur sem slefa yfir mér í alla nótt og mæla mig allan. C’est la vie.

Þvílík og önnur eins snilld

April 17th, 2007

Um helgina fórum við og hjóluðum um sveitirnar. biking.jpgÉg, Frikki og Áki fórum á laugardeginum og síðan komu Erica og Jói með okkur á sunnudag. Ég verð að viðurkenna það að ég hef ekki fengið aðra eins útrás í langan tíma og alveg á hreinu að þetta svæði verður kannað betur í náinni framtíð.

Fjallahjólageitur

April 13th, 2007

Þá er það ákveðið. Ég, Frikki og Áki ætlum að halda uppá fyrstu fjallahjólahelgi dauðans 2007 með ferð niður í Surrey Hills sem mér er sagt að sé eitt af bestu svæðum sem London hefur uppá að bjóða. Hér er ein síða sem bendir á möguleika á þessu svæði. Hlakka mikið til, þetta er nú einu sinni jómfrúarferðin á nýja hjólinu. Jibbí

Hrundarmótið í badminton

April 5th, 2007

 Hrundarmótið í badminton

Mikið er badmintonflóran á Íslandi sæt! :)

Hrund afmæli

April 3rd, 2007

Íslandsmótið í badminton

April 1st, 2007

tegh.jpgÞar sem íslandsmótið í badminton er núna um helgina er við hæfi að bregða upp mynd sem tekin var fyrir 7 árum síðan þegar ég varð íslandsmeistari í tvíliðaleik karla með Georg Hansen. Það stóð til hjá okkur Hrund að taka þátt í tvenndarleiknum þetta árið en því miður var það ekki hægt vegna anna. Það verður engin afsökun að ári, þá tökum við íslandsmeistaratitilinn, jafnvel í fleiri greinum…

Heima um jólin

December 14th, 2006

Alveg merkilegt hvað maður getur kallað marga staði heima. Gleymi aldrei hvað mér fannst skrítið þegar ég kom ‘heim’ til Englands eftir fyrsta jólafríið á Íslandi. Tilfinningin að vera kominn heim var sterk þótt ég væri á Englandi og það fríkaði mig alveg út :)

En að allt öðru, við erum nefnilega að koma heim til Íslands 22. des. og förum aftur heim 1. janúar (eldsnemma um morguninn að auki!). Föstudagurinn milli jóla og nýárs verður nýttur í badmintonmót sem nefnist Vinir-Og-Vandamenn og er opið hverjum þeim sem hefur spilað badminton með okkur Hrund í gegnum árin. Stefnt er að mótið hefjist um 18:00 og verður síðan haldið heljarinnar pub-quiz veisla eftir 22:00 (ef þú vilt nálgast boðsmiða á pub-quizið settu þig þá í samband við undirritaðan :)) Hlakka til að sjá ykkur um jólin, Tolli.